Viðskiptaskilmálar Valit Ráðgjöf ehf

Skilmálar þessir taka gildi þann 20. febrúar 2020

1. Samningar um viðskipti við Valit Ráðgjöf 

Gildissvið skilmála 

Þessir skilmálar gilda um öll viðskipti Valit Ráðgjöf ehf við viðskiptavini félagsins, nema um annað sé samið sérstaklega. Viðskiptaskilmálarnir ásamt sértækum skilmálum hverrar vöru, viðskiptasamningur og eftir atvikum samningsviðaukar fyrir hvern viðskiptavin, teljast að jafnaði heildarsamningur aðilanna um viðskiptin. Í undantekningartilvikum geta samningar við Valit Ráðgjöf ehf haft að geyma aðra skilmála en hér að neðan. Slíkir skilmálar koma þá annað hvort í stað neðangreindra skilmála eða teljast viðauki þeirra og eru slíkir skilmálar kynntir, þegar við á. Viðskiptaskilmálar þessir og ákvæði þeirra eru hluti af samningum aðila og gilda um öll viðskipti og alla samninga, sem þeir gera sín á milli um kaup á vörum og þjónustu, nema um annað sé samið sérstaklega með skriflegum hætti. Sértækir viðskiptaskilmálar á tilteknum sviðum geta einnig átt við um viðskipti og samninga Valit Ráðgjöf ehf við þriðja aðila um kaup á vöru og þjónustu. Viðskiptaskilmálarnir eru ófrávíkjanlegir og gilda um öll þau atriði sem fram í þeim koma, nema sérstaklega sé um þau samið með skriflegum hætti. Skulu allar breytingar á samningsskjölum vera skriflegar og undirritaðar. Frávik frá viðskiptaskilmálunum teljast ekki samþykkt af hálfu Valit Ráðgjöf ehf fyrr en undirritað samþykki Valit Ráðgjafar liggur fyrir. Valit Ráðgjöf ehf áskilur sér rétt til að breyta bæði viðskiptaskilmálum og vöruskilmálum með dagsettri endurútgáfu þeirra. Verði efnislegar breytingar á skilmálunum skal Valit Ráðgjöf ehf tilkynna þær breytingar til verkkaupa með að lágmarki 30 daga fyrirvara. Allir samningar, sem gengið verður frá eftir þá dagsetningu, falla undir hina nýju skilmála. Sé misræmi í texta viðskiptaskilmála og texta samnings eða samningsviðauka gildir texti samnings eða samningsviðauka. 

Upphaf viðskipta 

Ósk um að stofna til viðskipta við Valit Ráðgjöf ehf geta viðskiptavinir beint til félagsins munnlega (þ.á.m. í síma) eða með tölvupósti, eftir því um hvaða vöru eða þjónustu ræðir. Samningur getur verið munnlegur en þó er þörf á að staðfesta hann skriflega, ef um stærri viðskipti er að ræða. 

Samningar og viðaukar 

Valit Ráðgjöf ehf kann að óska eftir sérstökum samningi um einstök viðskipti, þar sem kveðið er á um gildistíma samnings, upphafsdag, umfang, vöru og þjónustu, verð og ábyrgðartíma. Sérstakir viðaukar kunna að verða gerðir við slíka samninga, er tilgreina sérstakar vöru- og þjónustulýsingar. Kominn er á samningur um viðskipti á milli Valit Ráðgjöf ehf og viðskiptavinar, þegar viðskiptavinur hefur staðfest tilboð, undirritað samning eða samningsviðauka, tekið vöru eða þjónustu í notkun eða greitt fyrir vöru eða þjónustu til Valit Ráðgjöf ehf. Staðfest tilboð, samningur ásamt samningsviðaukum, sé um það að ræða, og viðskiptaskilmálum myndar þannig heildarsamning aðilanna. Valit Ráðgjöf ehf skilgreinir gildistíma tilboðs og er óbundinn af því, hafi því ekki verið tekið með formlegum hætti, þegar það rennur út. Nema annað sér tekið fram í einstökum samningum eða tilboðum þá gilda samningar Valit Ráðgjöf ehf í 12 mánuði frá undirskrift og eru óuppsegjanlegir á þeim tíma. Við breytingar á samningi milli Valit Ráðgjöf ehf og viðskiptavinar, hvort sem er að umfangi eða við breytingu á þjónustuleiðum, endurnýjast sá tími. 

Uppsögn samninga 

Valit Ráðgjöf ehf kann að óska eftir sérstökum samningi um einstök viðskipti, þar sem kveðið er á um gildistíma samnings, upphafsdag, umfang, vöru og þjónustu, verð og ábyrgðartíma. Sérstakir viðaukar kunna að verða gerðir við slíka samninga, er tilgreina sérstakar vöru- og þjónustulýsingar. Kominn er á samningur um viðskipti á milli Valit Ráðgjöf ehf og viðskiptavinar, þegar viðskiptavinur hefur staðfest tilboð, undirritað samning eða samningsviðauka, tekið vöru eða þjónustu í notkun eða greitt fyrir vöru eða þjónustu til Valit Ráðgjöf ehf. Staðfest tilboð, samningur ásamt samningsviðaukum, sé um það að ræða, og viðskiptaskilmálum myndar þannig heildarsamning aðilanna. Valit Ráðgjöf ehf skilgreinir gildistíma tilboðs og er óbundinn af því, hafi því ekki verið tekið með formlegum hætti, þegar það rennur út. Nema annað sér tekið fram í einstökum samningum eða tilboðum þá gilda samningar Valit Ráðgjöf ehf í 12 mánuði frá undirskrift og eru óuppsegjanlegir á þeim tíma. Við breytingar á samningi milli Valit Ráðgjöf ehf og viðskiptavinar, hvort sem er að umfangi eða við breytingu á þjónustuleiðum, endurnýjast sá tími. 

2. Umboðsviðskipti og samstarfsaðilar

Umboðsviðskipti 

Valit Ráðgjöf ehf getur selt búnað í umboði þriðja aðila. Slíkir aðilar geta borið beina ábyrgð gagnvart viðskiptavinum eða falið Valit Ráðgjöf ehf að annast um nauðsynlega þjónustu á ábyrgðartíma búnaðar. 

Samstarfsaðilar 

Valit Ráðgjöf ehf gerir samninga við samstarfsaðila um sölu og þjónustu á tilgreindum búnaði og tilheyrandi þjónustu. Valit Ráðgjöf ehf ber ekki ábyrgð á viðskiptum samstarfsaðila við viðskiptavini þeirra en leitast engu að síður við að aðstoða við markaðsfærslu samkvæmt samstarfssamningum. Í samstarfssamningum Valit Ráðgjöf ehf við samstarfsaðila er eftirfarandi haft að leiðarljósi: 


  • Hvorugur aðila notar vörumerki hins eða kemur fram í hans nafni nema um það hafi verið samið sérstaklega.
  • Allar upplýsingar, sem aðilar láta hvor öðrum í té eru opinberar. Engar trúnaðarupplýsingar eru látnar í té nema um það sé samið sérstaklega.
  • Aðilar geta að vild gert samninga innbyrðis og við þriðja aðila.
  • Engin önnur réttindi en þau, sem tilgreind eru, flytjast á milli aðila í viðskiptum.
  • Aðilar geta notað rafrænar sendingar í samskiptum sínum og jafngildirrafræn undirskrift formlegri undirskrift að því leyti sem landslög heimila. Notendaauðkenni á skjali er nægjanleg staðfesting á gildi og réttsemi skeytisins.
  • Hvor aðili um sig skal veita gagnaðila sanngjarna möguleika til að uppfylla skuldbindingar sínar áður en reistar eru kröfur um brot á samningi.
  • Hvorugur aðila getur sett fram kröfur eftir að tvö ár eru liðin frá því að kröfuefnið varð til. 

Ábyrgð samstarfsaðila 

Hafi um það verið samið milli viðkomandi samstarfsaðila og Valit Ráðgjöf ehf, veitir Valit Ráðgjöf ehf viðskiptavinum samstarfsaðila hliðstæða ábyrgðarþjónustu og Valit Ráðgjöf ehf veitir eigin viðskiptavinum eftir því sem nánar er kveðið á um í samstarfsaðilasamningi sem ætlast er til að aðilar geri með sér. 

3. Sala á búnaði og þjónustu 

Afhending á búnaði og þjónustu 

Valit Ráðgjöf ehf leitast við að afhenda búnað og þjónustu á umbeðnum eða umsömdum tímum og upplýsa viðskiptavini eftir föngum um stöðu mála hverju sinni. Sé um afgreiðslufrest að ræða er hann tilgreindur í samningi. Er hann jafnan áætlaður og ekki bindandi fyrir Valit Ráðgjöf ehf, nema það sé tekið fram með skýrum hætti. Kaup á búnaði og þjónustu frá Valit Ráðgjöf ehf eru almennt háð lögum um lausafjárkaup, nr. 50/2000, þar sem ákvæðum þessara skilmála, vöruskilmála, samninga eða viðskiptavenju milli aðila sleppir. 

Innkaupaþjónusta 

Um kaup á búnaði, þ.m.t. innihald, kröfur og samsetningu búnaðar, fer eftir samningum aðila eða pöntunum viðskiptavina, sem sendar hafa verið Valit Ráðgjöf ehf og samþykktar af hálfu Valit Ráðgjöf ehf með skriflegum hætti. Valit Ráðgjöf ehf heldur eignarrétti að hinum selda vélbúnaði þar til andvirði hans er að fullu greitt. Samþykktir víxlar, skuldaviðurkenningar, greiðsla með ávísun, greiðslukorti eða öðrum áþekkum greiðslumiðli afnemur ekki eignarréttinn fyrr en full skil hafa verið gerð. Sala, framsal, veðsetning eða ráðstöfun búnaðar, sem ekki er að fullu greiddur, er óheimil án undangengins samþykkis Valit Ráðgjöf ehf. Viðskiptavinir hafa afnotarétt af stýrihugbúnaði og forritapökkum á einkatölvur. Engin önnur réttindi flytjast til viðskiptavina á grundvelli samnings aðilanna. Áhætta vegna vélbúnaðar flyst til viðskiptavinar við afhendingu eða á uppsetningardegi, ef samið hefur verið við Valit Ráðgjöf ehf um uppsetninguna. Valit Ráðgjöf ehf ber áhættu þangað til. 

Skilaréttur 

Skilafrestur á búnaði eru 30 dagar frá dagsetningu kvittunar fyrir kaupum. Sé vöru skilað innan 14 daga frá þeirri dagsetningu býðst viðskiptavini full endurgreiðsla sem jafngildir upphaflegu kaupverði. 


Skil á búnaði eru háð eftirfarandi skilyrðum: 


  • Að framvísað sé kvittun fyrir kaupum á viðkomandi búnaði.
  • Að búnaður teljist í söluhæfu ástandi.
  • Að allir aukahlutir sem fylgja eiga búnaðinum séu til staðar, þ.m.t. allar snúrur ogleiðbeiningar.
  • Að ekki hafi verið settur upp hugbúnaður á búnaðinn.
  • Að búnaður sé ekki sérpantaður eða sérsniðinn að þörfum viðskiptavinar Valit Ráðgjöf ehf
  • Valit Ráðgjöf ehf áskilur sér rétt til að hafna skilum á búnaði eða neita viðskiptavinium fulla endurgreiðslu séu ofangreind skilyrði ekki uppfyllt.
  • Starfsmenn Valit Ráðgjöf ehf geta ákveðið að taka á móti búnaði þó ofangreind skilyrði séu ekki uppfyllt og fær viðskiptavinur þá endurgreitt að hámarki 70% af kaupverði. Athuga skal að endurgreiðsla vegna skila á búnaði nær aðeins til kaupverðs búnaðar en annar kostnaður sem fellur til m.a. vegna flutnings á búnaði er á ábyrgð viðskiptavinar. 

Endursala og endurráðstöfun 

Búnaður, sem Valit Ráðgjöf ehf selur, er keyptur til eigin nota kaupanda án ásetnings um endursölu. Um endursölu gilda sérstakir samningar, sjá kaflann um Umboðsviðskipti og samstarfsaðila. Við útflutning á búnaði ber að fara að gildandi reglum um vöruútflutning. 

Sala á þjónustu 

Um kaup á þjónustu fer eftir samningum aðila eða pöntunum viðskiptavina, sem sendar hafa verið Valit Ráðgjöf ehf og samþykktar af hálfu Valit Ráðgjöf ehf með skriflegum hætti. 

Umfang þjónustu 

Valit Ráðgjöf ehf veitir fagþjónustu á sviði upplýsingatækni við ráðgjöf, kerfishönnun, uppsetningarvinnu á búnaði, viðhald búnaðar og annað sem tilgreint er í samningi. Þjónusta Valit Ráðgjöf ehf kann að vera í stöðluðu formi eða aðlöguð að aðstæðum hverju sinni. Fyrirtæki gera viðskiptasamning við Valit Ráðgjöf ehf. Viðskiptasamningur getur verið tímabundinn eða ótímabundinn. Tímabundin þjónusta er veitt í skilgreindan tíma og framlengist sjálfkrafa að þeim tíma loknum nema annar hvor samningsaðila segi henni upp. Ótímabundinni þjónustu lýkur, er annar hvor samningsaðila segir henni upp til slita samkvæmt ákvæðum samnings. Aukaverk eru háð sérstöku samkomulagi og reikningsfærð sérstaklega.

Starfsfólk og undirverktakar 

Hvor samningsaðili um sig ber ábyrgð á störfum þeirra starfsmanna sinna sem koma að framkvæmd viðskiptasamnings. Hvor aðili tilnefnir fulltrúa fyrir sína hönd til að annast daglega framkvæmd samnings. Valit Ráðgjöf ehf getur að eigin vali ráðstafað starfsfólki sínu til að veita þjónustu samkvæmt samningnum eða fengið til þess undirverktaka eða starfsmenn þriðja aðila. Gerð samnings stendur ekki í vegi fyrir því að Valit Ráðgjöf ehf, starfsfólk Valit Ráðgjöf ehf eða undirverktakar leysi af hendi hliðstæð þjónustuverkefni fyrir aðra aðila. 

Hugbúnaður frá öðrum – forritapakkar 

Hugbúnaður og leyfisforrit er selt á forsendum framleiðandans eða eiganda réttindanna. Yfirleitt er um að ræða sölu á einkaleyfisbundnum, óframseljanlegum réttindum til notkunar þannig að eignarréttur til hugbúnaðarins er ekki seldur, heldur aðeins réttindin til að nota hann. Heimild til notkunar kann að gilda um ákveðinn umsaminn tíma. Hugbúnað af þessu tagi má ekki selja, leigja, framselja eða afhenda öðrum, nema um það sé sérstaklega samið. Afritun er háð takmörkunum, er framleiðandi eða eigandi hugbúnaðarins setur. Hugbúnaðarþjónusta kann að vera í boði við þessa tegund hugbúnaðar. Framleiðandi hugbúnaðarins eða Valit Ráðgjöf ehf í umboði hans veita þá þessa þjónustu eftir því sem skilgreint er í samningi. Hugbúnaður frá öðrum er seldur með tölvuvélbúnaði og ætlaður til notkunar á eina vél í einu en afritun hugbúnaðarins er háð takmörkunum og skilmálum framleiðenda. 

4. Greiðslur 

Vörur og þjónusta 

Verð fyrir vörur og þjónustur Valit Ráðgjöf ehf eru sett fram í verðskrám, sérverð eða tilgreind verð í samningi. Öll aukaverk, sem Valit Ráðgjöf ehf vinnur í þágu viðskiptavinar að hans ósk og ekki er kveðið á um sérstaklega í samningum milli aðila, eru gjaldkræf. Minnsta eining tíma á dagvinnutíma er 0,5 klst. En ef verkefni krefst þess að það sé unnið á vinnustað viðskiptavinar er einingin 2 klst. Dagvinnutími er skilgreindur sem 8-17 virka daga. Utan þess tíma er um útkall að ræða og eining því 4 klst. nema um annað hafi verið samið milli aðila.

Breytingar á verðskrám 

Valit Ráðgjöf ehf áskilur sér rétt til að breyta verðskrám sínum eftir þörfum hverju sinni og tilkynna viðskiptavinum um það með 90 daga fyrirvara. Vörur sem eru háðar gengi eru gjaldfærðar samkvæmt gengi á hverjum tíma. Vörur sem bera vísitölutengingu taka breytingum í samræmi við þróun þeirrar vísitölu. 


Ferðakostnaður og flutningsskilmálar 

Eftir því sem viðskiptavinur óskar eftir kann að vera kveðið á um greiðslur vegna sérstakra flutningsskilmála eða sérstakrar umsýslu í samningi. Mun slíkt verða upplýst áður en stofnað er til viðskiptanna. Valit Ráðgjöf ehf gerir tilkall til sérstakrar greiðslu fyrir eftirfarandi nema um annað sé samið. Athugið að upptalningin er ekki tæmandi: 


  • Flutning á búnaði frá húsakynnum Valit Ráðgjöf ehf á umbeðinn stað.
  • Flutning á búnaði vegna viðgerða.
  • Ferðakostnað og ferðatíma vegna þjónustu á stöðum, þar sem Valit Ráðgjöf ehf hefur ekki að staðaldri starfsfólk, sem þjálfað er til að veita þjónustu viðhlutaðeigandi búnað.
  • Vinnutíma og ferðakostnað vegna aðgerða, sem falla utan umsamin þjónustutíma.
  • Vinnutíma á ferðum og ferðalögum, ferðakostnað og flutningsgjöld, sem falla utanvið umsamda þjónustu við búnað. 
  • Ferðakostnað og ferðatíma vegna búnaðar, sem fellur undir viðgerðar- og útskiptiþjónustu.

Reikningar 

Viðskiptavinur ber fulla ábyrgð á að greiðslur fyrir vörur og búnað berist Valit Ráðgjöf ehf á réttum tíma. Athugasemdir skulu gerðar við útgáfu reikninga án tafar og eigi síðar en á eindaga þeirra ellegar teljast þeir samþykktir af hálfu viðskiptavinar. Hafi athugasemdir viðskiptavinar borist eftir eindaga og atvik réttlæta með ótvíræðum hætti, að athugasemdir bárust ekki í tæka tíð, mun Valit Ráðgjöf ehf taka afstöðu til þeirra athugasemda.


Valit Ráðgjöf ehf gefur út reikning í upphafi hvers mánaðar vegna greiðslu fyrir þjónustu sem innt er af hendi í líðandi mánuði, nema um annað sé samið í samningi aðila.


Verð og fjárhæðir í samningi aðila eru tilgreindar í íslenskum krónum, án virðisaukaskatts, nema annað sé tekið fram.


Reikningar skulu greiddir á gjalddaga og eigi síðar en á eindaga. Skal Valit Ráðgjöf ehf sjá svo um, að reikningar séu sendir viðskiptavini með góðum fyrirvara eða birtir honum á annan hátt samkvæmt samkomulagi aðila. Falli reikningur eða aðrar samningsskuldbindingar í eindaga ber viðskiptavini að greiða dráttarvexti af reikningnum í samræmi við III. kafla vaxtalaga nr. 38/2001.


Verkkaupi skal inna greiðslur af hendi inn á bankareikning sem Valit Ráðgjöf ehf tiltekur eða með greiðslu greiðsluseðils. Annað greiðsluform telst ekki fullnægjandi. Allir reikningar Valit Ráðgjöf ehf skulu vera sundurliðaðir og studdir fylgiskjölum, eigi það við, svo unnt sé að sannreyna þá. Verði ágreiningur um fjárhæð reiknings getur verkkaupi ekki neitað greiðslu á þeim hluta sem er óumdeildur. Verkkaupa ber að upplýsa Valit Ráðgjöf ehf um hvers konar athugasemdir við reikninga þegar í stað og eigi síðar en innan sjö daga frá útgáfu reiknings. 

5. Skyldur og réttindi aðila

Þáttur viðskiptavina 

Viðskiptavinur skal tryggja að Valit Ráðgjöf ehf hafi fullnægjandi aðgang að aðstöðu viðskiptavinar og eftir atvikum þriðja aðila þannig að Valit Ráðgjöf ehf geti uppfyllt skyldur sínar samkvæmt samningnum. Viðskiptavini ber einnig að veita Valit Ráðgjöf ehf allar upplýsingar svo Valit Ráðgjöf ehf geti uppfyllt skyldur sínar.


Viðskiptavini er óheimilt að taka í sundur hugbúnað sem honum er látinn í hendur af Valit Ráðgjöf ehf eða stuðla að nokkrum breytingum á honum. Í almennum viðskiptum við Valit Ráðgjöf ehf er gengið út frá því að viðskiptavinir séu ásáttir um eftirfarandi: 


  • Að veita Valit Ráðgjöf ehf greiðan aðgang að búnaði eftir afhendingu í þeim tilgangi að uppfylla skyldur sínar samkvæmt samningum aðila.
  • Að lána ekki búnað, samnýta ekki eða gefa þriðja aðila aðgang að búnaði án skriflegs samþykkis Valit Ráðgjöf ehf.
  • Að framselja ekki samning eða samningsbundin réttindi við Valit Ráðgjöf ehf til þriðja aðila án áður gerðs samþykkis.
  • Að selja ekki ógreiddan búnað frá Valit Ráðgjöf ehf, framselja hann ekki né veðsetja eða ráðstafa honum á nokkurn þann hátt, sem fer í bága við eignarrétt Valit Ráðgjöf ehf.
  • Að nota búnað frá Valit Ráðgjöf ehf aðeins í eigin þágu og afla hans ekki í því augnamiði að selja hann, leigja eða lána án áður gerðs samþykkis. 
  • Að heimila Valit Ráðgjöf ehf að setja í búnað tæknibreytingar, sem Valit Ráðgjöf ehf telur nauðsynlegar til dæmis af öryggisástæðum. Fjarlægðar búnaðareiningarverða eign Valit Ráðgjöf ehf. Starfshæfi búnaðar eftir breytingar skal ekki skerðast.
  • Viðskiptavinur ber sjálfur ábyrgð á þeim árangri, sem næst af notkun búnaðar og þjónustu frá Valit Ráðgjöf ehf.
  • Að samningstíma loknum lokast aðgangur að netþjónum og öðrum tækjabúnaði
  • Valit Ráðgjöf ehf án tafar. Ber viðskiptavinur því ábyrgð á að afrita öll gögn í sinni eigu, sem vistuð eru hjá Valit Ráðgjöf ehf áður en samningar renna út eða þeim er sagt upp.
  • Að bjóða ekki starfsmönnum Valit Ráðgjöf ehf, sem tengst hafa þjónustusamningi, stöðu í eigin fyrirtæki innan 12 mánaða frá því að verkefnissamningi lauk nema að höfðu samráði við Valit Ráðgjöf ehf.
  • Að geta einkaréttindayfirlýsingar sinnar með greinilegum hætti á öll eintök leyfisforrita, sem notuð eru í fyrirtæki hans samkvæmt sérstökum samningi.
  • Að fara að landslögum og opinberum stjórnvaldsákvörðunum. 

Þáttur Valit Ráðgjöf ehf 

Valit Ráðgjöf ehf skal tryggja að starfsfólk sitt og aðrir sem annast þjónustu við

viðskiptavini á vegum Valit Ráðgjöf ehf hafi þá sérþekkingu, menntun og reynslu og

starfi ávallt af heillindum til að geta sinnt verkefnum sem samningur við viðskiptavin

kveður á um.


Valit Ráðgjöf ehf áskilur sér rétt:


  • Til að fjarlægja efni af vélbúnaði Valit Ráðgjöf ehf, sem brýtur gegn lögum og reglum. 
  • Til þess að neita að framkvæma verk eða þjónustu sem stangast á við lög eða geta, að mati Valit Ráðgjöf ehf, truflað starfsemi eða valdið óásættanlegutjóni á högum Valit Ráðgjöf ehf, viðskiptavinar eða þriðja aðila.
  • Til þess að synja viðskiptavini um þjónustu og frekari kaup á búnaði, hafi reikningur ekki verið greiddur innan 30 daga frá eindaga.
  • Til þess að synja viðskiptavini um aðgang að gögnum, sem vistuð eru á búnaði
  • Valit Ráðgjöf ehf, hafi reikningur ekki verið greiddur innan 60 daga frá eindaga.
  • Til þess að eyða gögnum viðskiptavinar, sem vistuð eru á búnaði Valit Ráðgjöf ehf, hafi reikningur ekki verið greiddur innan 150 daga frá eindaga. Valit Ráðgjöf ehf skal tilkynna verkkaupa um allar breytingar í rekstri sínum sem geta haft áhrif á getu þess til að sinna verkefnum samkvæmt samningi aðila. Brjóti gögn þjónustukaupa gegn lögum getur þjónustusali gripið til aðgerða sem heimilaðar eru lögum samkvæmt eins og t.d. að fjarlægja eða hindra aðgang að gögnum sbr.14.gr. laga nr. 30/2002 um rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu. 

6. Ábyrgð 

Almennt um ábyrgð 

Valit Ráðgjöf ehf kappkostar að uppfylla væntingar viðskiptavina til gæða þjónustu og selds búnaðar. Kaup á búnaði frá Valit Ráðgjöf ehf eru háð lögum um lausafjárkaup, nr. 50/2000, þar sem ákvæðum þessara skilmála, sérskilmála, samninga eða viðskiptavenju milli aðila sleppir.


Valit Ráðgjöf ehf ábyrgist, að allur vélbúnaður virki og sé í góðu lagi á afhendingardegi. Sé ábyrgðartími ekki skilgreindur, er hann 1 ár.


Notaður vélbúnaður, sem seldur er sem slíkur, nýtur ekki ábyrgðar nema um það sé samið sérstaklega.


Ábyrgð tekur til allra framleiðslugalla, lagfæringa og viðgerða að meðtöldum varahlutum og vinnutíma tæknimanna. Ábyrgð gildir ekki, ef bilun verður, sem rekja má til annarra orsaka en framleiðslugalla, svo sem rangrar meðferðar, slits eða notkunar á rekstrarvöru. Ábyrgð á rafhlöðum er eitt ár nema að um annað sé samið.


Kaupandi skal tilkynna Valit Ráðgjöf ehf um meinta galla á búnaði um leið og hann verður gallans var, án ástæðulauss dráttar.


Reynist búnaður hafa verið gallaður við afhendingu eða tilkynni viðskiptavinur Valit Ráðgjöf ehf um gallaðan búnað innan fyrrgreindra tímafresta, skal Valit Ráðgjöf ehf bæta úr gallanum á eigin kostnað.


Ábyrgð á vélbúnaði fellur niður, ef: 


  • Leiðbeiningum framleiðanda búnaðar og Valit Ráðgjöf ehf um hirðu, notkun, álag, íhluti eða viðhald er ekki fylgt.
  • Bilun má rekja til illrar eða rangrar meðferðar.
  • Óviðkomandi aðili hefur opnað eða átt við búnað, breytt honum eða bættvið hann á einhvern hátt.
  • Bilun má rekja til þess að vélbúnaður hafi verið tengdur við rangarafspennu.
  • Bilun stafar af rangri tengingu við rafkerfi eða netkerfi.
  • Bilun má rekja til óhæfs umhverfis, svo sem vegna ryks, hitastigs eða rakastigs. 

Valit Ráðgjöf ehf ber ekki ábyrgð á varðveislu þeirra gagna, sem vistuð kunna að vera á búnaði, nema um það sé samið sérstaklega. Starfi vélbúnaður ekki í samræmi við lýsingarkröfur á ábyrgðartíma og Valit Ráðgjöf ehf hefur ekki getað lagfært galla eða skipt út búnaðinum fyrir annan vélbúnað með hliðstæðri vinnslugetu innan sanngjarns tíma á viðskiptavinur rétt á að skila búnaðinum til Valit Ráðgjöf ehf og fá söluverðið endurgreitt.


Ábyrgð á búnaði gildir aðeins á Íslandi nema um annað hafi verið samið. Telji viðskiptavinur að þjónusta sem Valit Ráðgjöf ehf veitir sé haldin galla skal hann tilkynna Valit Ráðgjöf ehf um það um leið og hann verður gallans áskynja, án ástæðulauss dráttar.


Hafi aðrir aðilar en Valit Ráðgjöf ehf gert breytingar á vélbúnaði eða hann verið starfræktur með yfirálagi, áskilur Valit Ráðgjöf ehf sér rétt til að synja um þjónustu. 

Ábyrgð á forritapökkum 

Valit Ráðgjöf ehf ber ekki ábyrgð á forritapökkum, sem óháðir framleiðendur og hugbúnaðarfyrirtæki hafa þróað og framleitt. Valit Ráðgjöf ehf innir því ekki af hendi hugbúnaðarþjónustu eða villuleiðréttingar í neinni mynd nema um það sé samið sérstaklega. Jafnframt tekst Valit Ráðgjöf ehf ekki á hendur neins konar skuldbindingar varðandi forritapakkann eða notagildi hans í tilteknu skyni. Skilmálar framleiðandans fylgja með forritapökkum eða unnt er að afla sér þeirra með því að snúa sér beint til framleiðanda. Gilda þeir skilmálar um þá forritapakka, sem Valit Ráðgjöf ehf selur með vélbúnaði. Forritapakkar eru seldir og afhentir í því ástandi, sem þeir eru í við afhendingu frá framleiðanda og án þjónustuskuldbindinga af hálfu Valit Ráðgjöf ehf. Þjónusta Valit Ráðgjöf ehf við forritapakka er jafnan reikningsfærð á viðskiptavin nema um annað sé samið. 

Atvik utan ábyrgðar 

Valit Ráðgjöf ehf ber enga ábyrgð á kröfum, sem reistar eru á eftirtöldum atvikum:


  • Viðskiptavinur hefur sjálfur útvegað búnaðareiningu og sett eða látið setja í búnað, sem Valit Ráðgjöf ehf hefur selt.
  • Viðskiptavinur hefur gert breytingar á búnaði eða hefur staðið fyrirbreytingum á honum.
  • Viðskiptavinur hefur notað hugbúnað í öðru umhverfi en skilgreindu uppsetningarumhverfi.
  • Notkun samsetts búnaðar af einingum frá Valit Ráðgjöf ehf og einingum frá öðrum aðilum, sem Valit Ráðgjöf ehf hefur ekki afhent í heild sinni.
  • Virkni búnaðar, þ.m.t. hugbúnaðar, frá framleiðendum óháðum Valit Ráðgjöf ehf. 

Almennar takmarkanir á ábyrgð 

Öll þjónusta er veitt án skuldbindinga um viðbragðstíma eða tiltæka varahluti hverju sinni nema um annað sé samið sérstaklega.



Valit Ráðgjöf ehf ábyrgist ekki að búnaður eða þjónusta sé gallalaus, virki án reksturstruflana, að hugbúnaður starfi rétt eða að allar hugbúnaðarvillur sem og aðrar villur séu lagfærðar.



Valit Ráðgjöf ehf undanskilur sig allri ábyrgð á öllu óbeinu eða afleiddu tjóni, svo sem rekstrartapi, glötuðum ágóða eða sparnaði, töpuðum gögnum eða öðru tjóni, sem áður er ótalið, svo og öllum kröfum á hendur viðskiptavini frá þriðja aðila. Valit Ráðgjöf ehf ber ekki ábyrgð á tjóni: 


  • Sem þriðji aðili veldur.
  • Sem stafar af notkun hugbúnaðar eða gagnaefnis, svo og ef gagnaefnið glatast eða týnist af hvaða ástæðum sem er.
  • Sem verður á persónum, fasteignum og lausafé og kann að stafa af búnaði,sem Valit Ráðgjöf ehf hefur útvegað eða kynni að stafa af þjónustu fyrirtækisins.
  • Sem rekja má til sambandsleysis, rofs á þjónustu eða annarra truflana sem kunna að verða á rekstri þjónustu, hvort sem slíkt má rekja til bilana í línum, bilana í sambandastöðvum eða annarra ástæðna. Ef aðilar geta ekki uppfyllt skyldur sínar samkvæmt samningum vegna neyðarréttarlegra, óviðráðanlegra atvika, falla skuldbindingar þeirra, þ.m.t. möguleg bótaábyrgð, niður á meðan slíkt ástand varir.


Utan þess sem greinir í skilmálum þessum skal bótaábyrgð Valit Ráðgjöf ehf vegna hvers konar mistaka, villna, vanrækslu, truflana, tafa, tjóns eða galla á þjónustu eða búnaði sem verður í tengslum við samninga aðila, nema að hámarki jafnvirði þeirrar þóknunar sem viðskiptavinur hefur sannanlega greitt til Valit Ráðgjöf ehf fyrir þá tilteknu þjónustu eða búnað sem tjónið tengist á síðustu þremur mánuðum fyrir það atvik sem orsakaði umrætt tjón. 

7. Önnur ákvæði 

Hugverkaréttur – uppgötvanir og uppfinningar 

Valit Ráðgjöf ehf áskilur sér allan umsaminn rétt til hugverka er tengjast vörum og þjónustu sem látin er viðskiptavini í té.


Skilmálar þessir skulu engin áhrif hafa á hugverkarétt aðila og/eða afnotarétt af hvers konar atvinnuleyndarmálum, gögnum, trúnaðarupplýsingum eða öðru efni sem tengist búnaði eða þjónustu.


Skilmálar þessir hafa ekki í för með sér neins konar yfirfærslu á höfundarétti frá einum aðila til annars, nema þar sem ákvæði samninga kveða sérstaklega á um það.

Notkun vörumerkja 

Valit Ráðgjöf ehf er ekki heimilt að vísa til viðskiptavinar á vefsíðu sinni eða birta vörumerki hans þar, sem og í öðru kynningarefni á vegum Valit Ráðgjöf ehf, nema með samþykki viðskiptavinar. Viðskiptavinur skal jafnframt leita samþykkis Valit Ráðgjöf ehf fyrir slíkri notkun á nafni og vörumerkjum í eigu Valit Ráðgjöf ehf.

Upplýsingaöryggi og vinnsla persónuupplýsinga 

Valit Ráðgjöf ehf skuldbindur sig til að vinna eftir samningsbundnum og skjalfestum reglum viðskiptavinar. Sama gildir um um kröfur til upplýsingaöryggi sem lög eða þar til bær stjórnvöld kunna að gera til starfsemi viðskiptavinar eða verktaka á hans vegum. Öll vinna Valit Ráðgjöf ehf tengd úttektum viðskiptavinar á öryggistengdum þáttum Valit Ráðgjöf ehf skal greidd samkvæmt verðskrá Valit Ráðgjöf ehf hverju sinni. Slíkar úttektir skulu ekki vera gerðar nema einu sinni á ári og skal tilkynna um slíkt með hæfilegum fyrirvara og gera í samráði við Valit Ráðgjöf ehf. Viðskiptavinur skal tryggja að starfsmenn, umboðsaðilar eða verktakar virði reglur Valit Ráðgjöf ehf um öryggi upplýsinga sem og öðrum verklagsreglum sem eru bundnar í samning Valit Ráðgjöf ehf og viðskiptavinar. Viðskiptavinur skal halda starfsmönnum, umboðsmönnum og verktökum sínum upplýstum um þær kröfur sem þarf að fylgja vegna öryggisstefnu Valit Ráðgjöf ehf. Viðskiptavinur skal bæta og tryggja Valit Ráðgjöf ehf skaðleysi að því er varðar skemmdir, kostnað eða útgjöld sem Valit Ráðgjöf ehf verður fyrir vegna vanefnda á þessu ákvæði nema tjónið megi rekja til athafna eða athafnaleysis starfsmanna Valit Ráðgjöf ehf. Viðskiptavinur telst ábyrgðaraðili í skilningi laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga (persónuverndarlög), að því er varðar hvers konar vinnslu á persónuupplýsingum. Valit Ráðgjöf ehf telst vinnsluaðili skv. persónuverndarlögum vegna vinnslu persónuupplýsinga fyrir hönd viðskiptavinar. Vinni Valit Ráðgjöf ehf persónuupplýsingar fyrir hönd viðskiptavinar skulu aðilar gera með sér sérstakan samning um vinnslu á persónuupplýsingum í samræmi við persónuverndarlög þar sem skyldur aðila eru nánar tilgreindar. 

Fyrirtæki undir eftirliti Fjármálaeftirlitsins 

Gagnvart fyrirtækjum sem eru háð eftirliti Fjármálaeftirlitsins þá staðfestir Valit Ráðgjöf ehf að félagið hefur kynnt sér leiðbeinandi tilmæli Fjármálaeftirlitsins nr. 1/2019 vegna áhættu við rekstur upplýsingakerfa eftirlitsskyldra aðila og nr. 6/2014 um útvistun hjá eftirlitsskyldum aðilum og skal tryggja að tilmælum þessum sé fylgt.


Viðskiptavinur ber alfarið ábyrgð á öllum fyrirmælum sem hann beinir til Valit Ráðgjöf ehf og ber Valit Ráðgjöf ehf ekki ábyrgð á atvikum sem fara í bága við tilmæli Fjármálaeftirlitsins ef þau stafa af fyrirmælum viðskiptavinar.


Valit Ráðgjöf ehf skal tryggja aðgang starfsmanna viðskiptavinar, ytri og innri endurskoðanda viðskiptavinar og Fjármálaeftirlitsins að starfsmönnum, upplýsingum og vinnustöð Valit Ráðgjöf ehf í þeim tilgangi að kanna framkvæmd verkefna sem unnin eru fyrir verkkaupa á grundvelli samnings aðila. Slíkt eftirlit eða aðgangur skal að öllu leyti lúta reglum Valit Ráðgjöf ehf um upplýsingaöryggi.


Fyrirkomulag aðgangs skal vera með þeim hætti að það ógni ekki upplýsingaöryggi annarra viðskiptavina Valit Ráðgjöf ehf. Öll vinna er tengist aðgengi Fjármálaeftirlits eða annarra aðila sem viðskiptavinur óskar að fái aðgang að gögnum sínum skal greidd af viðskiptavin samkvæmt verðskrá Valit Ráðgjöf ehf hverju sinni.


Viðskiptavin er heimilt að segja samningi aðila upp án fyrirvara ef Fjármálaeftirlitið gerir kröfu um slíkt vegna sérstakra aðstæðna að mati Fjármálaeftirlitsins sem réttlæta slíka uppsögn.


Valit Ráðgjöf ehf er með öllu óheimilt að vista tölvubúnað og gögn hjá þriðja aðila (keðjuútvistun / undirvinnsluaðila) nema með samþykki viðskiptavinar. Óski Valit Ráðgjöf ehf eftir því að keðjuútvista skal viðskiptavinur meta keðjuútvistunaraðila með sjálfstæðum hætti og skal keðjuútvistun ekki framkvæmd nema viðskiptavinur hafi veitt sannarlegt samþykki.


Komi til breytinga á framkvæmd eða tilmælum frá Fjármálaeftirlitinu samþykkja aðilar að semja um breytingar á samningnum í góðri trú þannig að fylgja megi slíkri framkvæmd eða tilmælum.


Við uppsögn viðskiptasamnings sammælast samningsaðilar um útgönguáætlun. 

Trúnaður

Öll gögn og upplýsingar sem Valit Ráðgjöf ehf verður vísari um viðskiptavin og skjólstæðinga hans skal vera trúnaðarmál þeirra á milli.


Efni samninga er trúnaðarmál milli Valit Ráðgjöf ehf og viðskiptavinar þar til báðir aðilar hafa samþykkt annað skriflega.


Viðskiptavinur skal á sama hátt gæta fyllsta trúnaðar um gögn og upplýsingar er varða Valit Ráðgjöf ehf. Upplýsingar skal aðeins nota í þeim tilgangi sem þær voru fengnar og að því marki sem nauðsynlegt er við framkvæmd samningsskuldbindinga aðila.


Aðilar skuldbinda sig til að ljóstra ekki upp trúnaðarupplýsingum sem þeir hafa móttekið frá gagnaaðila, þ.m.t. upplýsingum um stjórnunarlegar, fjárhagslegar eða tæknilegar aðstæður gagnaðila, aðrar aðstæður varðandi rekstur, viðskipti eða atriði sem ætla má að teljist trúnaðarupplýsingar, sem halda ber leyndum.


Upplýsingar, sem eru eða ætla má að séu á allra vitorði eða öllum aðgengilegar, teljast ekki trúnaðarupplýsingar, nema slíkar aðstæður stafi af broti á þessu ákvæði. Þagnarskylda skal gilda áfram eftir að samningssambandi lýkur. 

Framsal

Aðilum er óheimilt að framselja réttindi og skyldur sem samningssamband þeirra hefur í för með sér nema að fengnu skriflegu samþykki gagnaðila. Þó er aðilum heimilt að framselja réttindi og skyldur til dótturfyrirtækja sem þeir eiga að öllu leyti svo fremi að viðeigandi leyfi séu framseld til viðtakandi fyrirtækis.


Valit Ráðgjöf ehf er heimilt að ráða undirverktaka til að framkvæma ákveðna verkþætti sem sérstaklega eru tilgreindir í samningi aðila. Leita skal samþykkis viðskiptavinar við val á undirverktaka. Valit Ráðgjöf ehf er þó heimilt að framselja skyldur sínar samkvæmt samningi án samþykkis viðskiptavinar ef slíkt er að mati Valit Ráðgjöf ehf nauðsynlegt til að bregðast við atvikum sem nauðsynlegt er að bregðast við án tafar en einungis í tilvikum sem undirverktaki fær ekki aðgang að persónuupplýsingum viðskiptavinar.


Efni framsalshafi ekki skyldur sínar samkvæmt skilmálum þessum skal framseljandi bera ábyrgð á réttum efndum hans gagnvart gagnaðila.

Tímafrestur um tilkynningu á galla 

Viðskiptavinur Valit Ráðgjöf ehf glatar rétti sínum til þess að bera fyrir sig galla, ef hann tilkynnir ekki Valit Ráðgjöf ehf án ástæðulauss dráttar frá því að hann varð galla var eða mátti verða hans var og í hverju galli var fólginn.


Ef viðskiptavinur leggur ekki fram kvörtun innan árs frá þeim degi, er hann veitti búnaði eða þjónustu viðtöku, getur hann ekki síðar borið gallann fyrir sig. Þetta gildir þó ekki ef Valit Ráðgjöf ehf hefur í samningi eða sérstakri ábyrgðaryfirlýsingu tekið á sig ábyrgð vegna galla í lengri tíma. 


Í samningum við Valit Ráðgjöf ehf geta samningsaðilar ekki gert neina kröfu, af hvaða tegund eða tilefni hún kann að vera, eftir að meira en tvö ár eru liðin frá því að kröfuefnið varð til eða meira en tvö ár eru liðin frá síðustu greiðslu, ef um greiðslufall er að ræða. 

Óviðráðanleg atvik 

Geti Valit Ráðgjöf ehf vegna óviðráðanlegra atvika ekki efnt skyldur sínar gagnvart samningsaðila er félagið laust undan öllum skuldbindingum sínum um þann tíma sem óviðráðanleg atvik standa yfir og samningsaðili á ekki rétt til að beita vanefndaúrræðum gagnvart Valit Ráðgjöf ehf, þ.m.t. kröfum um endurgreiðslu, afslátt, skaðabætur, uppsögn eða riftun. Með óviðráðanlegum atvikum (e. Force Majeure) er átt við atburð eða aðstæður sem ekki eru á valdi Valit Ráðgjöf ehf enda sé þannig háttað um þau að að Valit Ráðgjöf ehf hafi ekki verið unnt að yfirvinna þau með eðlilegum ráðum.


Án takmörkunar um almennt gildi þess, sem að framan greinir skulu atburðir og atvik m.a. taka til styrjalda, uppreisna, skemmdarverka, óeirða, náttúruhamfara, aðgerða stjórnvalda á sviði gjaldeyris- og viðskiptamála, viðskiptabanna, hafnabanna, almennra samgönguhindrana, flutningsbanna, orkuskorti, hvers kyns netárása, óviðráðanlegum atvikum í samskiptum við undirverktaka og hvers kyns ámóta atvika sem valda röskun á efndum Valit Ráðgjöf ehf, þ.m.t. ef birgjar eða þjónustuaðilar Valit Ráðgjöf ehf geta ekki uppfyllt skuldbindingar sínar gagnvart Valit Ráðgjöf ehf á grundvelli óviðráðanlegra atvika sem leiða til þess að Valit Ráðgjöf ehf geti ekki efnt skuldbindingar sínar gagnvart samningsaðila.


Komi til þess að óviðráðanleg atvik standi yfir í 30 daga samfellt eða lengur getur Valit Ráðgjöf ehf rift eða sagt samningi við samningsaðila fyrirvaralaust án þess að baka sér bótaskyldu. 

Riftun 

Samningsaðili getur rift samningi án fyrirvara, ef um er að ræða verulega vanefnd af hálfu hins aðilans í samræmi við almennar reglur. Valit Ráðgjöf ehf getur til viðbótar venjulegum vanefndaheimildum m.a. rift samningi vegna vanefnda ef:


  • Viðskiptavinur greiðir ekki reikninga Valit Ráðgjöf ehf vegna umsaminnar og veittrar þjónustu innan 30 daga eftir eindaga.
  • Viðskiptavinur uppfyllir ekki samningsbundnar skyldur sínar við Valit Ráðgjöf ehf innan 30 daga frá dagsetningu skriflegrar tilkynningar frá Valit Ráðgjöf ehf um efnisatriði málsins.
  • Viðskiptavinur notar búnað með öðrum hætti en notkunarskilmálar eða aðrar útgefnar leiðbeiningar um meðferð hans kveða á um.
  • Viðskiptavinur notar búnað umfram það, sem Valit Ráðgjöf ehf skilgreinir sem hámarksnotkun á tilgreindu tímabili.
  • Viðskiptavini er veitt heimild til greiðslustöðvunar, hann fær heimild til að leita nauðasamninga eða verður gjaldþrota.
  • Aðrir en starfsmenn Valit Ráðgjöf ehf hafa án undanfarandi samþykkis Valit Ráðgjöf ehf veitt hinum tiltekna búnaði þjónustu.
  • Verði samningi rift af hálfu Valit Ráðgjöf ehf ber viðskiptavini að greiða áfallin gjöld samkvæmt samningum auk alls kostnaðar.


Þá getur Valit Ráðgjöf ehf gripið til eftirfarandi aðgerða séu forsendur til riftunar vegna vanefnda til staðar:


  1. Sagt upp þjónustusamningi að hluta eða í heild.
  2. Tekið hugbúnað í sína vörslu eða gert hann ónothæfan.
  3. Innheimt allar gjaldfallnar og ógjaldfallnar leigugreiðslur samkvæmtviðkomandi samningi.
  4. Beitt öðrum vanefndaúrræðum eftir því sem við á. Viðskiptavinur skal halda Valit Ráðgjöf ehf skaðlausum af öllum útgjöldum og tekjumissi sem Valit Ráðgjöf ehf kann að verða fyrir vegna vanefnda viðskiptavinar á þjónustusamningi. Eigi Valit Ráðgjöf ehf viðskipti við viðskiptavin á grundvelli fleiri samninga en eins leiða brot hans á einum samningi til þess að Valit Ráðgjöf ehf getur sagt upp öllum samningum sínum við viðskiptavininn. 

Lög og varnarþing 

Samningar Valit Ráðgjöf ehf við viðskiptavini og viðskiptaskilmálar þeim tengdir falla undir íslensk lög. Skulu undanþæg ákvæði laganna víkja fyrir samningum þessum og skilmálum samrýmist þau þeim ekki. Leiði lög um þjónustukaup með ófrávíkjanlegum hætti til hagstæðari kjara fyrir viðskiptavini en samningar þessir og skilmálar kveða á um skulu þau lög gilda.


Rísi mál út af viðskiptasamningum Valit Ráðgjöf ehf og/eða skilmálum félagsins skal það rekið fyrir Héraðsdómi í varnarþingi Valit Ráðgjöf ehf.

Share by: